Litli Kúabóndinn

Litli Kúabóndinn

07.02.2008 21:19:23 / andvari

jáá flott!

Jæja.. þeim sem langar í blogg.. skellið ykkur á;

www.sigrunlitla.bloggar.is !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 20:15:53 / andvari

......

Jæja.. kannski maður bloggi.. svona uppá grínið..

Annars er mjög lítið á seyði.. ekkert að gerast og maður húkir bara heima hjá gömlu.. ekkert sérlega spennandi verð ég að segja..

Eeeen þá er bara mál að fara og finna sér eitthvað að gera.. spurningin bara hvað.. nú hef ég enga Friends til að horfa á þannig maður lætur sér þá bara leiðast..

Ég hef nú bara ekkert merkilegt að segja.. þannig bara stuð..

Eeen Heiða, nú er ég búin að blogga eitthvað drasl sem getur varla talist blogg..

Sæl að sinni..

- Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 16:14:12 / andvari

shiii

jæja.. góðan dag gott fólk.. maður ætti kannski hugsanlega að fara blogga e-ð örlítið hérna..

Það hefur annars fátt á daga mína drifið.. bara sofa og éta öll jólin.. ótrúlegt að hafa ekki stækkað um of og passað ekki í fötin sín lengur.. eflaust gerðist það hjá einhverjum sem tók öllu þessu með öfgafullri bræði.. en ég meina hvað er það á milli vina..?

,,Þið eigið ábyggilega vel saman, og verðið eflaust á endanum hjón!"

Þetta hljómar hérna innan úr stofunni.. ekki veit ég nú afhverju.. en aðalmálið er nú að fara koma sér í ballgírinn.. jáá.. það er rétt.. ball með Geira nálgast.. og það ball með gamla fólkinu.. sem er í raun ekkert svo gamalt.. en er bara heldur ekki ungt þannig það titlar sig bara gamalt.. nema bara af okkar vörum.. en ég meina.. það er annað mál.. þetta var næstum nógu flókið til að ég skildi þetta ekki sjálf..

en nú er svo komið að maður er komin á 17 árið.. kannski maður ætti að segja örlítið frá 2007? bara pínulítið..

  • Janúar, 16 ára böll.. aðalmálið..
  • Febrúar, Þorrablót.. MIKLUMEIRA AÐALMÁLIÐ!
  • Mars, Einhver böll.. ÁRSHÁTÍÐ Varmó.. 
  • Apríl, Páskar, ásamt böllum..
  • Maí, Samræmd próf, böll og partý..
  • Júní, mjólkað kýr, slappað af og e-ð af böllum..
  • Júlí, mjólkað kýr, e-r heyskapur, sveitin í blóma sínum og svo einhver böll held ég.. 
  • Ágúst.. sorglegasta og dapurlegasta verslunarmannahelgi sem ég hef upplifað.. að vissu leyti.. þó það hafi verið ball.. ýmislegt gerðist á mánaðamótum Ágúst og Júlí..
  • September, komin með kærasta, réttarböll, hestbak og réttir ooog smá skóla..
  • Október, skóli og próf og skóli..
  • Nóvember, nokkur afmæli, allir slakir
  • Desember, enginn kærasti, 16 ár liðin frá einum viðburðaríkum atburði og sagan endurtekur sig..

Jaaa.. þetta ár einkennist af böllum.. alveg þangað til í október.. þá skyndilega kemur mikil ballekla og menn missa vitið.. en vitið safnast aftur saman í koll ungra meyja og sveina þegar á böllin er haldið yfir áramótin og þrettándann..

Og skólinn byrjar svo bara aftur og lífið gengur sinn vanagang.. Pabbi búin að tönnslast á því; Mikil ósköp sem maður verður ánægður þegar lífið gengur sinn vanagang aftur.. Greinilega ekki maður fyrir breytingar..

Eeen þetta ætti nú að vera komið gott.. þó ég hafi reyndar ekki mikið meira betra að gera hérna eins og staðan er núna.. en ég meina, hvað er það á milli vina..?

Ég sé sennilega meirihlutann af fólkinu sem les þetta á Þrettándaballinu í kvöld!

Takk fyrir mig og verði ykkur að góðu..!

- Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 13:36:51 / andvari

Fráb.

Og ég sagði bara; nákvæmlega!
Og hún bara; Einmitt!!! Ég skil þig svo vel maður!
Og ég bara; Já akkúrat..!

Hmm.. langt síðan maður hefur heyrt svona eða hvað..?
Neeeii það held ég nú ekki.. maður heyrir þetta hvar sem maður fer hvenar sem maður fer... ójááá.. einmitt.. svooo gaman,,

Allavega.. ég og Maximilian Köninger erum hér á bókó að slappa af þangað til ég fer í naturefræði hjá Nínu.. alltaf gaman í naturefræði hjá Nínu.. en þetta er síðasti tíminn og bara nææææs..:)

Móðir kær var rétt í þessu að hringja og tilkynna mér það að ég ætti að fara og vinna fyrir hana  meðan hún væri að þrífa hjá afa.. einmitt.. rosa stuð.. og ég fæ að vinna með svölustu konu á landinu.. EINMITT!! LÍSU! sem er minni en ég.. ójá.. ein af fáum.. en Lísa er bara best.. :) semsagt ég er að fara vinna við að taka úr uppþvottavél og bera af borðum og e-ð.. en þar sem Lísa verður að vinna þá er það bara gott..:) og maður fær smá extra þjórfé.. óóójááá.. hlakka til að fá að gera e-ð..

Svo eru fréttir.. Reynir að koma og setja gluggana í kjallarann.. future heimili Óskars og Þórdísar.. ójá.. einmitt.. þau eru svo gömul hjón.. ójá.. einmitt.. og ég á að vinna á meðan.. svo var planið að fara á ball.. en svo held ég að það sé ekkert ball.. held það séu bara allir að misskilja e-ð.. allavega ætla ég ekki að mæta svona og vera bara ein.. :( en það mun allt lemja í kjós.. eins og maðurinn sagði..

"Ingjaldsfíflið átti, ágætis æfi.......
Þó að Gísli Súrson hjá honum SVÆFI!"

allt í einu mundi ég eftir þessu.. það sem gerðist í 9. bekk.. mér fannst eins og það væri löngu gleymt.. en svo mundi ég eftir því þegar Berglind var að kenna okkur bókmenntir og við fengum að heyra lag! þvílíkt og annað eins!

En hörmung.. Óskar Páll er bara e-ð útí rassgati að smíða.. er bara aldrei heima hjá sér.. :( makes me sad...! so sad..! hann er e-ð á Skriðu í Hörgárdal að smíða.. og eftir áramót ætlar hann bara að setjast þar að.. :( og ég bara.. NEEEEEI! en svo var þetta allt í lagi.. maður slappar af..!:) óóóóójá..!

 

Heehe.. þetta voru nú góðir tímar..:) 

Nóg komið af fréttum hér í dag.. óóóójá..

Ég nefni nú "óóóójáá" sem orð þessa bloggs..!

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 18:35:08 / andvari

jesssss...

Hmm.. ég veit ekki hvað ég á að segja.. ég nenni ekki að hafa þetta sem einhverja dagbók.. en ég get varla gert neitt annað..

Síðustu dagar hafa bara verið lengi að líða.. fyrsti góði dagurinn í langan tíma var í gær.. Skellti mér á Grease með Þórdísi og Heiðu.. og svo endaði dagurinn á því að Óskar minn sæti maður kom og lúllaði hjá mér.. :) og við Þórdís fengum að sjá litla barnið mitt.. :) geeeeeðveikt mikið krútt.. :) Hann heitir nefnilega Vaskur.. litla barnið mitt og Óskars.. eeða reyndar bara Óskars en það er allt í lagi.. :)

Allavega.. ég verð nú bara að lifa þessi helgi af án hans Óskars..:( það verður þrautinni þyngri þar sem drengurinn er stunginn af í Hörgárdalinn að smíða..:( makes me sad.. eeeeen til allarar hamingju er til hlutur er við köllum sími sem ég vona af öllu mínu hjarta að hann noti.. :) hehehe.. alltaf að halda í vonina by the way.. ;) Pabbi er bara horfinn til Húsavíkur.. eða á Egilsstaði.. og e-ð..:( þannig ég verð víst að sjá um búið með mömmu gömlu.. það verður alveg rosalegt fjör.. kannski.. Eeeeen.. við Óskar bróðir ætluðum nú að sýna lit og moka undan litlu sætu lillunum mínum.. þeir eru orðnir frekar illa lyktandi þarna í hálminum sínum..:( Ég veit þó ekki hvað verður úr þessum mokstri.. een ég vona það besta..

Skólinn alveg að klárast.. allavega þessi önn.. ein af mörgum.. jájáá.. vona bara að maður nái blessuðum jólaprófunum.. það er fyrir öllu.. ójáójá.. ekki spurning.. Bara EIN vika eftir og svo koma 2 vikur af prófum.. það verður ljúft..

Og viti menn.. senn líður að því að kvinden hérna verði 16 ára.. :) einungis vika og 5 dagar.. :) held ég.. þá verður glatt á hjalla.. ef einhver man eftir því það er að segja.. jújújú.. alltaf að vona það besta.. :) allavega.. ég hlakka til að verða loksins 16 ára og vera ekki yngri en allir aðrir busarnir í FNV.. makes me sad.. :(

Heyrðu við ætlum að segja þetta gott hérna í bili.. við hérna Hannes sem situr við hlið mér og mænir á mig.. þ.e. kötturinn.. og ég ætla að kveðja..

Veriði sæl..

Sigrún | Litli Kúabóndinn......................... glaðari en venjulega.. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 15:49:17 / andvari

Jáááá..

Heil og sæl gott fólk..

Maður er bara hérna í skólanum að dunda sér.. ég hef semsagt lítið sem ekkert að gera hér þangað til klukkan verður 16:00 þannig að ég ætla að segja ykkur hvernig helgin mín fór..

Tjaa mamma og pabbi fóru suður og svo til Skotlands á miðvikudaginn.. og fólu mér það stóra verkefni að fara í fjósið og mjólka það sem þarf að mjólka.. það fól í sér að vakna kl. 4 á skólamorgnum og gjöra svo vel að fara og mjólka.. það er ekkert annað.. bras að fá ekki frí í skólanum.. en þetta herðir mann bara.. reyndar vorum við öll frekar þreytt í skólanum.. :( við stóðum okkur líka geeeeðveikt vel í eldamennskunni.. við borðuðum fisk, homemade pizzu og síðan elduðum við lambalæri áður en mamma og pabbi komu heim og borðuðum með bestu lyst.. reyndar var svo mikið eftir.. jafnvel þó að ÓskarPáll hefði komið í mat líka.. greinilega ekki nóg að hafa bara 4 í mat.. þó það hafi verið 2 stórir óskarar þarna.. þetta er vandamál..

Mig vantar bara e-ð að drekka.. ég veit ekki afhverju ég skrifaði þetta.. heyrðu.. og svo er bara framundan að gera e-rja helvítis ritgerð í nát 123 og klára heima dæmin..:( leeeeeim... :(

ég ætla að láta þetta helvíti duga.. og blóta þessu öllu saman i sand og ösku.. andskotans djöfulsins heitasta helvíti...

By the way.. Do you have a mint..?

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 10:58:13 / andvari

Partí..

Það er bara partý...

[ Viðvörun: Þetta blogg er einungis gert og þá einungis gert til þess að fólk eigi í vandræðum með að lesa það og skilji ekki helminginn af því og hætti áður en það svo mikið sem nær að lesa helminginn.. Þetta er þess vegna stór áskorun!]

Allavega.. ég er með þessa setningu á heilanum.. í hvert skipti sem ég er að tala við fólk þá kemur alltaf af og til inní setningar; jáá, það er bara partý...Þetta er það sem ég vildi sagt hafa..Það er bara vandamál þegar maður fær svona línur á heilann.. og ég er að blogga alveg hreinast sagt og óhreinast sagt viðbjóðslega hundleiðinlega og agalega hættulega innihaldslaust blogg.. og kannski nokkur lýsingarorð til viðbótar..Sko.. ég nenni þessu varla en ég er bara að gera e-ð svo ég deyji ekki úr leiðindum og svo ég virðist hafa e-ð að gera þangað til :^)Lífsleikni:^) byrjar.. :^) Anyway.. leið mín liggur á Akureyri á eftir.. þar sem ég þarf að fara til "tannréttingasérfræðings" svo við höfum þetta orðrétt.. Þetta er auðvitað það leiðinlegasta sem maður gerir... að keyra í klukkutíma hvora leið og þurfa svo að þola pyntingar frá "tannréttingasérfræðingi" og ofan á það allt saman er ekki vegur að éta neitt án þess að fá hausverk í 3 daga eftir.. það er slæmt mál.. :( Eeen mig langar ekki að tala meira um það... hmm.. þið viljið varla vita hvað ég gerði um síðustu helgi.. því það var ekki beinlínis margt.. ég fór í krókinn á laugardagskvöldinu.. bara til að knúsa hann Þorra minn.. sem ég sakna alveg rosalega.. een auðvitað endaði það með því að ég fór á rúntinn með Smára og Þorra og mági mínum honum Helga sem var nú væntanlega að keyra.. hann var nú ljóti hálfvitinn að reyna að ljúga því að mér að Óskar hefði haldið framhjá mér.. þá mér skapi næst að beita drenginn ofbeldi.. og hann hló að mér! hmm.. kannski var það afþví ég er svo lítil og ætlaði að gera mig líklega til að meiða hann.. heehee.. kannski fremur furðuleg sjón.. Eeen allavega.. svo fórum við semsagt á rúntinn og Þorri fór að ljúga að Helga að ég hefði gert ýmislegt af mér og svona.. þetta venjulega.. e-ð að reyna að reita mig til reiði.. een það tókst ekki alveg hjá honum greyinu.. ;) allavega.. síðan lá leið okkar alveg óvart á barinn þar sem alveg fyrir tilviljun var Papaball og alveg fyrir tilviljun og ég vissi ekki af henni þá var ÓskarPáll minn þar ásamt fleiru skemmtilegu fólki.. og mér tókst hvorki meira né minna en að draga drenginn heim með mér.. eftir að hafa vælt í honum að koma með mér í partý til Ingiríðar í staðinn fyrir að fara í partý í Hóla.. Greyið maðurinn að velja sér svona konu..8| þetta er ekkert vit.. 8| Hann komst samt heim til mín.. og með mér og mömmu meira að segja.. og Óskar og Þórdís sluppu með.. :) Þeir Óskararnir átu síðan lambakjöt þegar heim kom og svo plöntuðum við okkur í rúmið mitt góða og sváfum svo vel..:) Alveg partý sko.. Síðan þá hefur ekkert verið að gerast í mínu lífi.. og þá meina ég ekkert..:( slæmt mál.. ég nenni ekki að gera neitt og svo þarf maður að fara til tannlæknis og svo er kærastinn vinnualki og svo er það bara vandamál.. og svo eru drengirnir aldrei heima og ég hef engann að tala við og það er ömurlegt.. þetta er hræðilegt ástand.. 8| og ég þurfti svo að gera mjólkurskýrsluna fyrir september og það var þá kominn 16. október.. ég vissi að þetta myndi gerast.. mamma og pabbi nenna ekki að gera þetta strax á mánaðamótunum og þá þarf ég að gera þetta og þarf að kafa eftir upplýsingum í tölvunni og það er bara vandamál.. :( Nú þetta blogg er komið langleiðina að því að verða ca. 300 km á lengd.. og 800 kg að þyngd.. þetta er náttla offitu blogg á þeim skilningi málsins.. en þar sem blekið er svo þungt þá er þetta alltof þungt miðað við lengd sko.. það ætti að vera 252 kg þannig þetta blogg verður sennilega komið með ónýt liðamót og lélegt æðakerfi eftir ca. 1 og 1/2 ár.. þannig er nú það.. ég ætla nú að fara hætta þessu..

Ég sé ykkur síðar gott fólk.. veriði sæl...

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 22:42:50 / andvari

Dagurinn í dag..

Daginn í dag,
Daginn í dag,
Gerði drottinn Guð,
Gleðjast ég vil,
Gleðjast ég vil...

Einmitt.. þetta minnir mig á skemmtilega og/eða uppátækjasama ferð í fermingarfræðslu á Löngumýri.. ROOOOSSSAAALEG stemmning þar á ferð.. eenda var maður nú ungur þá.. það var jú það herrans ár 2005.. man einhver eftir því...?? neeei hélt ekki..

Allavega.. það sem ég vildi sagt hafa.. Það er nú komin alllangur tími frá því síðast.. maður er alveg að detta útúr blogg gírnum hérna.. ég man nú forðum daga þegar maður bloggaði alveg nánast vikulega og svo var rekið á eftir manni þar sem Ragnheiður nokkur Halldórsdóttir lagði það í vana sinn að blogga daglega.. ég skil reyndar ekki svona stefnu.. að sitja fyrir framan tölvuna og pikka e-ð inn sem svo örfáir eiga eftr að lesa og hugsanlega enginn.. þetta er að vissu leyti algjörlega tilgangslaust.. nú næstum jafn tilgangslaust og það getur verið að skirfa dagbók.. sem ég by the way.. hef aldrei nokkurn tíman hugsanlega getað.. vegna þess að það krefst of mikillar vinnu og maður þarf nauðsynlega að muna það sem gert var yfir daginn.. það er einfaldlega of erfitt fyrir mig.. jafn erfitt og það er fyrir mig að vera í lífsleikni.. og það skal ég segja ykkur er þolraun.. það reynir á taugarnar þegar kennarinn er að kenna manni e-ð sem maður kann eða e-ð sem maður einfaldlega þarf ekki að læra því maður þarf enga bölvaða námstækni.. til fjandans með námstækni og skipulag! Þetta er nú komið nóg um Lífsleikni og skipulag..

Hér skal það koma fram að ég er Skagfirðingur í húð og hár og ætla mér að vera það til frambúðar.. Maður kannski yfirgefur fjörðinn örlitla stund til að klára námið.. een það er bara til betrunar og verður ekki fyrr en eftir a.m.k. 3 ár.. Og mun ég snúa aftur um leið.. Og hér skal tekið fram að Skagafjörðurinn er og mun vera besti staður landsins hvort sem um er að ræða náttúrufegurð, safn fornminja, fagurt kvenfólk og auðvitað drykkjuskap&skemmtanalíf.. þetta helst allt í hendur og gerir Skagafjörðinn að þeim stað sem ekki ein einasta mannskepna má missa af.. een því miður hafa ekki allir komið í fjörðinn fagra í norðri.. þeir eru verð ég að segja að missa af miklu..
(Hér lýkur lýsingu minni á Skagafirði)

 

Jæja.. þetta var svona smá útúr dúr.. allavega.. skólinn bíður mín alla næstu vikuna.. það fyllir mig miklum leiða.. minnir mig bara á EKKI GVSK þ.e. ég get ekki ég vil ekki ég skil ekki ég kann ekki... það er nú ekki flóknara en það..

"ÉG HARMA ÞAÐ EN SAMT ÉG VERÐ AÐ SEGJA AÐ SUMARIÐ LÍÐUR ALLTOF FLJÓTT"
(Þetta er auðvitað tekið úr laginu Söknuður eftir Vilhjálm Vilhjálmsson.. sem ég ætla að spila við jarðaförina mína)

En þetta er samt sem áður alveg hreint laukrétt hjá manninum(ég sem hata lauk).. Hann segir hér það sem við öll vildum sagt hafa þegar leið að hausti og skólinn byrjaði.. með söknuði kveður maður sveitina og heldur á vit örlaganna í skólanum sem er jú aðeins í 11 km fjarlægð.. ekki það að það skipti neinu máli.. een þetta var nú heldur hátíðlegt..

Minnir mig á einkar skemmtilegt spjall við eldhúsborðið.. þar sem ég minntist á LOL.. Arna mágkona var einmitt að læra fyrir próf í LOL103 það er bara fyndið.. LOL er sem sagt skammstöfun fyrir líffæra-og lífeðlisfræði.. og vitið bara hvað.. mjaðmagrind er á latínu PELVIS.. spáið aðeins í því.. Elvis dansaði bara með mjöðmunum.. tilviljun..? ég held ekki.. aftur á móti var þetta einstaklega skemmtileg umræða.. LOL..

Og það er því engin tilviljun að ég er með LOL á heilanum.. því þetta er bara svo einstaklega skemmtilegar tilviljanir tengdar þessu..

Allavega.. þetta er nú að styttast í 300 metrana hérna og ég ætti nú að fara hvlíla mig því fingurnir eru vægast sagt rjúkandi.. ég er búin að rita þetta á notime hérna..

Og kannski svona einn broskall til að brjóta upp bloggið.. 8)

Sæl að sinni & kveðjur úr Sveitinni!

- Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:21:02 / andvari

Hvor fjenden..!?!

Jææja..

Þetta fræga orð jæja.. ég veit ekki hversu oft ég hef skrifað það hérna í ofurbloggin mín í gegnum tíðina..

Een... þetta "een" er einmitt líka orð sem ég hef brúkað kannski aðeins of mikið og það gæti hugsanlega verið orðið dulítið þreytt.. eeeeeeen hverjum er svosem ekki sama..? þetta er nú einu sinni bara blogg..?

Allavega.. ég er ekki búin að setjast og blogga síðan um siðaskiptin eða e-ð.. það er að segja í júlí..

Maður er nú bara busy í skólanum núna.. bara komin í FNV.. beint á náttúrfræðibraut og náttúrufræðistíg.. een nóg um það..

ég veit nú ekki beinlínis hvað í ósköpunum ég á að segja hér.. það er nefnilega ekkert á seyði eins og er.. hmm.. ég veit ekki hvað..jújú.. busavígsla á föstudag..:) looking forward to it..:) verður sko fjör..! og þá meina ég FJÖR!

Hmmm.. ég er nú bara að leiðinni að læra hérna en ég bara hreinlega nenni því ekki.. allllss ekki.. pfff......

Ætli maður fari ekki að segja þetta gott héðan frá Reynistaðnum..! verið sæl og sæt að sinni..!:)

ég ætla að fara vera sæl og sæt að sinni.. svvvooo.. bleeeee!


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 00:40:19 / andvari

Long time no see!

Komiði sæl..

Langt um liðið verð ég að segja.. ekki veit ég hvaðan þetta blogg kemur.. en eitt er víst að það er langt síðan síðasta færsla var skrifuð hér.. Dagarnir hafa gjörsamlega þotið framhjá og ég hef bara ekki tekið eftir neinu í kringum mig.. veit ekkert og fæ ekki að vita neitt.. heyri ekkert slúður og ekkert..

Þannig fólk getur tæplega komið af fjöllum þegar ég segi að ég komi af fjöllum..

Mér finnst þó sniðugt hvernig sumarið líður hratt..
Maður er bara búin að vera í heyskap og í fjósi..
Lífið gengur bara svo hérna í sveitinni..
Karlmannslaus og án allra vina.. Liggur við..
Ég veit ekki hvað né hvar ég væri ef Óskar&Þórdís kæmu ekki heim við og við..
Ég veit nú voða lítið hvað maður ætti að segja hér..
Það er voða lítið að frétta héðan..
Maður saknar vina sinna.. sárlega..
Allavega ég..

En burt úr þessu volæði..

ég fór á ball á blönduósi í gær.. það var nú svona sæmilegt.. ég get ekki sagt að það hafi verið neitt frábært.. því það var ekki frábært.. en dansfélagi minn var að þessu sinni Smári ELSKAN..;) því hann var sá eini sem nennti e-ð að dansa og fíbblast.. haha..:) kannski sökum áfengis ég ætla þó ekki að fara með það.. við allavega fíbbluðumst allan tímann og skemmtum okkur.. án þess þó að vera inni allann tímann.. því við vorum úti heilllengi.. og lentum á spjalli við e-rn 23 ára gaur sem sagði okkur að það væri ekki gott að drekka þegar maður væri 16 ára.. en sagði okkur síðan að skemmta okkur vel og drekka og ég veit ekki hvað og hvað.. á þessu balli komst ég síðan að því að fólk er að hætta saman.. fólk er "næstum" búið að barna stelpur.. fólk er að dramaqueenast.. fólk er á fylleríi.. fólk er reykjandi.. fólk er takandi í nefið.. fólk er ælandi.. fólk er drekkandi.. fólk er að slást.. ég upplifði það að Skapti vinur Óskars bróó varð skyndilega "ofur-verndari" minn.. hahah.. jájá.. " Sigrún ef einhver er að bögga þig þá segiru mér eða Maxa frá því og við bara tölum við Óskar.." hahaha.. takk fyrir það Skapti minn.. een ég sé um þetta sjálf.. Þetta ball var einungis skemmtilegt að því leyti að ég hitti elskurnar mínar og knúsaði og kyssti vini mína og flippaði út með þeim.. Jónsi og liðið var bara leiðinlegt.. skyndilega saknaði ég Geira.. Mig langaði á ball í Árgarði eða Höfðaborg með Geira.. og svo var dansherrann í hestaferð og mætti ekki..:( þá greip mig sú löngun að fara út að flippast með Smára&Þorra.. og einhverjum Gumma eða Gunna eða e-ð frá Sigló.. Og ekki er allt búið enn.. Ég hitti nefnilega Ragga Guðmunds á ballinu.. sem er einmitt góðvinur Jóa og hefur komið í heimsókn í Reynistaðinn.. ég greip hann þarna á gólfinu og heilsaði honum með handabandi.. hann leit á mig og spurði svo; " mátt þú vera hér..?" ég svaraði auðvitað játandi.. sagðist vera með vinunum á svæðinu og hafði skilið bræðurna eftir heima.. skemmtilegt þetta.. Ekki veit ég nú hvað þessi færsla mælist löng í millimetrum talið.. kannski e-ð í kringum 22.000.400 mm að lengd.. sem gerir e-ð í kringum 22 km löng færsla.. ég held að það gæti verið e-ð nærri lagi.. þetta hefur kannski bara verið að safnast upp í sálinni.. síðan fyrir mánuði --- mínus einn dagur.. þetta ætti nú að vera komið gott..

"Hey There Delilah"

Hey there Delilah
What's it like in New York City?
I'm a thousand miles away
But girl tonight you look so pretty
Yes you do
Times Square can't shine as bright as you
I swear it's true

Hey there Delilah
Don't you worry about the distance
I'm right there if you get lonely
Give this song another listen
Close your eyes
Listen to my voice it's my disguise
I'm by your side

Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
What you do to me

Hey there Delilah
I know times are getting hard
But just believe me girl
Someday I'll pay the bills with this guitar
We'll have it good
We'll have the life we knew we would
My word is good

Hey there Delilah
I've got so much left to say
If every simple song I wrote to you
Would take your breath away
I'd write it all
Even more in love with me you'd fall
We'd have it all

Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me

A thousand miles seems pretty far
But they've got planes and trains and cars
I'd walk to you if I had no other way
Our friends would all make fun of us
and we'll just laugh along because we know
That none of them have felt this way
Delilah I can promise you
That by the time we get through
The world will never ever be the same
And you're to blame

Hey there Delilah
You be good and don't you miss me
Two more years and you'll be done with school
And I'll be making history like I do
You'll know it's all because of you
We can do whatever we want to
Hey there Delilah here's to you
This ones for you

Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
Oh it's what you do to me
What you do to me

 

Mér finnst þetta alveg einstaklega flott lag.. ég get hlustað á það aftur&aftur&aftur&aftur og aftur..

þetta er nú komið gott hér að sinni..
YFIR OG ÚT!

Litli | Kúabóndinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 19:35:46 / andvari

I wanna..

Jææjja..

Hafiði pælt í þessu..?
Fólk segir ótrúlega oft þetta "Jæja"..
Hvað er það eiginlega..? tja ég bara veit það ekki..
Ef maður er svona í miðju samtali.. een þarf eiginlega endilega að fara að hætta því.. þá segir fólk oft ; Jæja.. ég verð að drífa mig..: jájá.. það er svona..

Allavega.. það er nú ekki mikið að frétta svosem.. ekkert á seyði.. ekkert.. hvað á maður að segja.. "krassandi" á seyði.. pff.. talandi um að vanda orðalagið..

Eitt er víst að það er jú þjóðhátíðardagurinn.. sem einhverra hluta vegna er aldrei neitt frábær á mínu heimili.. kannski í mesta lagi góður matur.. een það er nú alltaf góður matur á mínu heimili.. Við fórum nú alltaf í Varmahlíð á árum áður og fengum karamellur úr flugvélinni.. það var stuð..

Já svo var 17. júní ball í gær.. með Ísafold.. það var bara ágætlega mikið stuð.. þó það væri annað ball með Geira í Idræthuset.. eða íþróttahúsinu.. sæmileg mæting allavega..

Og langþráður draumur minn rættist.. ég hitti Þorra og Smára og Kára og Ragnheiði og ÓskarPál og Skapta og Frímann og Sæma og ég veit ekki hvað og hvað.. það eina sem vantaði var Þórdís..:( því hún ákvað að fara á Geira..:( það er svona að vera 18 ára.. pff..

allavega... skemmtilegast í heimi að hitta þetta lið aftur.. þetta lið sem maður hefur þurft að þola gegnum árin.. een samt er maður svona líka að deyja úr söknuði þegar þau eru ekki lengur hérna..:( Me feeling sad..:( eeen byrjum nú að brosa..:)

Að vísu er engin sérstök ástæða til að brosa núna.. ég vaknaði kl. 12 eða e-ð nálægt því.. fór í sturtu að þvo af mér ball-svita-bjór-lyktina.. sem einhverra hluta vegna var föst í fötunum og hárinu og á skinninu.. allavega var það nú alveg hreint frábært.. og mjög hreint að sjálfsögðu.. síðan var bara slappað af.. bara horfa á sjónvarp.. spjalla við Þórdísi og Óskar og taka til í eldhúsinu.. sem einhverra hluta vegna fékk mig til að langa í heimsókn til einhvers.. síðan var bara horft meira á sjónvarp og núna er maður bara að bíða eftir landsleiknum sem verður á eftir.. og þar sem allt unga fólkið í Skagafirðinum.. og líka gamla fólkið er nú frekar nálægt heilsubrestinum þá ætlum við öll að brosa.. svona í tilefni af 17. júní..

Svo má nú ekki gleyma að það jú Jónsmessuhátíð á Hofsósi næstu helgi.. og ball með Geira auðvitað.. á maður ekki að mæta..? jú mér finnst það eiginlega vera skyldumæting.. allavega hjá oss hér í fyrrvernandi 10.bekk Varmahlíðarskóla.. og það er SKYLDA fyrir hann STEINA minn að koma.. allavega.. þetta ætti nú að vera svona það mesta sem er á seyði núna..

Og eitt enn.. hestarnir okkar voru komnir heim núna..:) jeijjj..:D og ég fór á hestbak á honum Vin.. hann er svo bestur.. een síðan sluppu þeir e-ð niðureftir og það á eftir að ná í þá.. een síðustu dagar hafa mikið til farið í að girða og reka hross.. allavega var fimmtudagurinn bara girðingar.. og föstudagurinn bara í smá girðingar og svo smalamennskan góða.. við máttum hlaupa mýrarnar með pabbi keyrði í makindum á eftir okkur.. rosaleg stemmning þar á ferð.. og svo hitti ég alla hestana mína.. og sá litlu folöldin.. og ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég sá litla nýja folaldið sem var bara að koma daginn áður.. hversu falleg geta dýr verið..? síðan var bara farið heim í kjúkling og svoleiðis dásamleg heit..

Laugardagurinn rann upp.. fallegur mjög.. sólríkt og mikill hiti.. við skelltum oss í fjós og síðan bara á hestbak.. og fórum berbakt á hestana.. og ég tolldi á hestinum allan tímann.. ég er þekkt fyrir að detta af baki um leið.. een hvað gerðist.. ég veit það ekki.. síðan var slappað af og foreldrarnir létu sig hverfa suður.. við vorum bara góð og allt í fínu þarna hjá okkur.. leið okkar lá svo í krókinn og að kaupa pizzu.. sem Óskar splæsti auðvitað í.. og síðan heim að éta.. og gera okkur klár og síðan aftur í krókinn á ball..:)

Een þetta blogg er farið að nálgast 300 metrana í lengdinni.. og ég er ekki hissa þó að fólk gefist upp á þessu.. þetta er allrosalegt..

En verið sæl að sinni og hafið það sem allra best á meðan ég hitti ykkur ekki..;)

Byebye..

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 20:32:46 / andvari

Einmitt

Jææja.. er ekki spurningin um að blogga smá..?

Nú verða sagaðar fréttir.. 

Nú er maður búin að bralla nokkuð síðan síðast..

  • Einkunnir úr samræmdu
  • sveitin mín
  • koma heim frá dk
  • sjá símareikinginn frá dk8|
  • hitta ömmu gömlu
  • kaupa nammi
  • og margt margt fleira

 

Pff.. á maður að láta einkunnirnar úr samræmdu líta dagsins ljós..?
jújú.. ætli það ekki bara..

Stærðfræði;  9.0
Íslenska;  8.0
Danska;  8.5
Enska;  8.0
Náttúrufræði;  8.0
Samfélagsfræði;  8.0

Já svo mörg voru þau orð.. en meðaltalið af þessu er einmitt 8,25..
Jæja.. þetta var nú ekkert merkilegt skal ég segja ykkur.. það vita væntalega flestir hvernig verðlaununum var háttað een vert er að segja frá því að ég fékk 3 verðlaun.. eða 3 bækur..

  1. Góður árangur í stærðfræði
  2. Besti árangur í samræmdu prófunum
  3. Besti árangur í skólanum í öllum fögum

 

En nóg um þetta.. maður er bara búin að slaka á í sveitinni.. eða svoleiðis.. fór á Akureyri.. auðvitað til tannlæknis.. sem er auðvitað ekkert spes.. ég hélt á tímabili að maðurinn ætlaði að rífa úr mér tennurnar.. een þetta bjargaðist nú allt saman.. við fórum auðvitað á Subway.. mmm.. my beloved Subway.. Ég og Sigurlína sem var með okkur... og auðvitað Svenni.. við skemmtum okkur ofur rosalega vel á Akureyrinni..

Rosaleg stemmning í sveitinni.. Ég og Þórdís erum líka alltaf að púsla.. hún keypti nefnilega 1000 púsla púsl um daginn og við bara liggjum yfir þessu.. í orðsins fyllstu merkingu..

 Í fréttum er þetta helst.. ég eyddi mestu af deginum í að reita arfa úr mölinni fyrir framan húsið.. og það var einstaklega ótrúlega illa leiðinlegt.. een það reddaðist þegar við heyrðum kunnulegann "dingding" hljóm.. og vitið hvað þetta var..?
Júúú.. þetta var ÍSBÍLLINN
ég elska Ísbílinn..

Allavega.. þetta er nú það sem er á seyði hjá okkur.. ekkert merkilegt nokk.. en ég bið bara að heilsa í bæinn og skila kveðju.. ef þörf krefur..

Hittumst Heil!

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 22:06:28 / andvari

Tjaaaa...

Ein ég sit og sauma, inní litlu húsi..
enginn kemur að sjá mig, nema litla músin..
Hoppaðu upp og lokaðu augunum..
bentu í austur, bentu í vestur..
Bentu á þann sem þér þykir BESTUR..!

 

Jææjja.. Hvað segiði svo..?
Skyndilega greip mig sú löngun að fara blogga..
eða öllu heldur er það þörfin til að tjá mig..
þar sem maður er bara heima þessa dagana og hittir ekkert fólk er eins gott að hafa einhvern möguleika á að tjá sig..
Eeen.. það er svona.. ég var jú í Danaveldi hér um daginn..
Það var jú alveg rosalegt..

 

En! við ætlum að hafa þetta stutt hérna í dag.. þar sem ég þarf að vakna í fyrramálið og vinna og svoleiðis gaman.. Heyrðu jáá.. ég er bara búin að vera í kúhúsinu síðustu daga, takk fyrir takk..!
een.. jááá.. ég fór jú á tónleika meeð.....
.... DEEP PURPLE..!
oog... ekki nóg með það.. heldur var URIAH HEEP
að hita upp..
Þetta var jú alveg hreint
gjörsamlega algjörlega snilldarlega frábært..
Heyrðu.. ekki er allt búið enn.. ég semsagt fór suður.. svo til nýkomin heim frá Dk.. oog við litum jú á hana Ömmu gömlu á sjúkrahúsið..
Haldiði að kellingin hafi ekki bara verið í aðgerð.. een sú gamla kemur nú heim á næstunni..;) Heyrðu jááá.. þetta var jú aldeilis sérdeilis prýðilegt.. een jáá.. ég hef nú sofið heldur lítið síðustu daga..

 

 

Það er nú ekki frásögu færandi..
 Jóhann Helgason..
Kannist þið e-ð við hann..?
Jújú.. mikið rétt það er hann bróðir minn..
Oog.. ekki nóg með það..
Heldur er hann brautskráður rafvirki..
takk fyrir takk..;)
Til hamingju bróðir sæll..:D
Heyrðu jáá og sagan er ekki öll..!

 

 

Eins og fram hefur komið.. þá kom ég heim á föstudagsmorguninn.. een þá var sofið eilítið og farið svo í grill og komið heim og undirbúið meira grill og farið í fjós og borðað grill og síðan var bara haugafyllerí..!
Rosaleg stemmning þar á ferð.. heyrðu jáá.. Þið getið rétt ímyndað ykkur.. u.þ.b. 7 karlmenn og 4 konur og ca.9 af þessum voru undir áhrifum áfengis..

 

Een þar sem ég var nánast sú eina sem smakkaði ekki áfengi þá dæmdist það á mig að fara í fjósið morguninn eftir.. eeen mér leið nú bara nokkuð vel sko.. og leið alveg einstaklega vel þegar ég sá hvað allir voru þunnir í kringum mig og vöknuðu ekki fyrr en lang var liðið á daginn.. Það er eitthvað svo ljúf tilfinning.. að muna eftir öllu sem gerðist een samt skemmta sér með.. oog líða vel daginn eftir.. það er bara einhvern veginn best... ttjaa.. ég veit ekki.. ég efast stórlega um að bræður mínir og fleiri ágætir félagar séu sammála.. eeen jáá.. þetta var alveg hreint brillíant..

 

Een þetta er ekki búið enn.. það var síðan grillað aftur kvöldið eftir.. og það var nú ekkert síðra.. een við fórum nú aðeins fyr að sofa þetta skiptið.. een jáá.. mjög vel heppnaðar grillveislUR.. jájájáá...

 

Og viti menn.. ég var sett í að passa á mánudaginn.. pff.. ég er ekki barnamanneskja.. een ég tók að mér að passa Róbert og Inga.. litlu bræður Svenna&Frímanns.. jájáa.. þetta gekk alveg vel sko.. var jú með Svenna með mér svo þetta var ekkert mál.. haha.. eeen bara svo allir viti það þá er ég ekki góð með börn.. og ég þoli ekki börn sem eru  með mikil læti og svoleiðis.. allir eiga að vera þægir og góðir hjá Sigrúnu.. takk fyrir takk..

 

jájá.. síðan er dagurinn í dag bara búinn að vera rólegur.. Vaknaði í fjós og fór með mömmu minni í fjósið.. síðan var farið í það að kaupa inn.. þar sem ískápurinn var tómur í morgun.. Svo tómur að Pabbi borðaði TEKEX í morgunmat..!8| svoleiðis nokkuð gerist ekki.. þið verðið að athuga að við erum mikil matarfjölskylda oog það er bara algjört hneyksli að borða TEKEX í morgunmat.. JESÚS.. ég segi ekki meira.. heyrðu.. svo var bara farið út í smá "girðingavinnu" eða öllu heldur að rífa niður girðingu.. og Jesús.. þetta var eldgömul girðing.. og við þurftum auðvitað að taka netið af.. svo það var mjög tímafrekt og reyndi mjög á þolinmæðina... eins gott að vera þolinmóður að eðlisfari.. Jesús.. allavega.. síðan fór maður bara í fjósið og aftur inn að éta og bara slappa af.. takk fyrir takk..;)

 

Ég held að þetta sé nú bara komið gott hérna í bili..
Ég er bæði búin með orðaforðann og fréttirnar..
Við sjáumst á skólaslitunum öll saman..
En þið hin.. kannski sjáumst við einhvern tíman..;)

 

 Ég bið að heilsa..!

Sigrún | Litli Kúabóndinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 20:38:56 / andvari

Eftirlitslaust..!

First of she's a lady,
And this is a lady's world
Shake it up, shake it up
there you go, oh ohh
Yassou Maria
Ai, ai, ai there she goes
Maria!
Yassou Maria
Það sem mér finnst þetta lag einstaklega skemmtilegt..
Ég bara næ ekki upp í það sko..
 -
  -
-
Heitasta helvíti.. Þetta Júróvisjón er að breytast í pólitíska keppni.. Bara heey.. ég kýs þig og þú kýst mig.. okay..? Mér er alveg hætt að lítast á blikuna skal ég segja þér.. Pff.. En samt sem áður ágæt keppni.. Þó sum af þessum lögum hafi engan veginn átt að komast áfram.. T.d. Búlgaría.. GVUÐMINNALMÁTTUGUR! Þvílík skelfing..
Annars er þetta nú allt í lagi.. Þessi keppni er nú ekki heilög fyrir mér.. Við komumst hvort sem er aldrei áfram..
Hversu fyndið..? ;) 
Mér líður annars bara okay vel hérna..
Smá bras útaf fjósi í morgun.. een ætli það reddist ekki á endanum..
Heyrðu.. svo var bara stemmning hjá 10.klasse á föstudaginn.. bara party og læti sko.. Við erum svo einstaklega rugluð að það er bara frábært.. 
Þetta byrjaði allt saman á því að BirgirÞór okkar sá um að grilla.. Og þvílíkt kjöt maður.. ég hef sjaldan smakkað svona rosalega gott grillkjöt..! Jammí!;) Heyrðu.. svo var ég bara í uppvaskinu.. ásamt Sif.. við stóðum okkur með prýði.. síðan var bara hækkað í músíkinni og djammað smávegis.. takk fyrir takk.. jájájá.. ekki spurningin.. Heyrðu.. Síðan fóru drengirnir tóku upp á því að fara að hlaupa um á slátrinu einu saman.. jájá.. það var ekkert sparað í þeim efnum.. brillíant alveg hreint.. Þetta var svo gaman e-ð.. ;) Jeijj..!:D
-
-
-
Heyrðu.. Ég fór síðan heim með Röggu.. Og beint í sauðburðinn maður..!
Það var nú aldeilis sérdeilis prýðilegt.. þar sem ég hef voðalega lítið vit á kindum þá gerði ég nú tæplega gagn þarna.. skrúfaði fyrir og frá vatninu og gaf gemlingunum að éta.. það var nú allt og sumt.. svo var bara sofið og étið og meiri sauðburður.. Síðan litu Óskararnir  við og við gláptum öll saman á Eurovision.. það var indælt maður.. Og Steinunn&Bjarni líka.. það var best.. hahah.. Síðan var nú ekki mikið eftir og móðir&faðir komu og gripu mig með heim.. við fórum á Shell og gripum spólur og nammi.. fullt af nammi.. snilldin ein sko.. og leiðin lá heim að horfa á myndir.. stemmningin í hámarki..
Síðan vaknaði maður eldhress í fjósið í morgun.. og ég reddaði þessu öllu saman.. eeða jááá.. svona næstum.. ég ætlaði mér nú alltaf að fara í fjós um hádegið.. en einhverra hluta vegna fór ég aldrei í fjósið þá.. og útkoman var ekkert spes.. þ.e.a.s. móðir var ekkert par hrifin af því að sumar kýrnar voru ei búnar að fara í gegn.. pff.. bölvað bras sem það nú var..  Og ég missti næstum sumarvinnuna útaf þessu öllu saman.. een það reddaðist nú.. sökum þess að ég á nú alveg hreint indælan föður sem virðist geta verið sáttasemjari milli mín og mömmu.. allavega.. það má ei hugsa um það sem er búið og gert.. seisei nei... allvega.. ég fór út á röltið og síðan bara inn.. og beint að elda lambalæri.. sem var svona líka bragðgott.. jammí.. ;) þetta var sem sagt bara ágætt.. hebbði ég nú haldið.. heyrðu.. ég held að þetta sé nú bara komið gott hjá mér í kveld..
Haha.. það sem er til á veraldarvefnum! 
Hilsen alle sammen..!
 -
Sigrún | Litli Kúabóndinn

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 16:30:44 / andvari

Samræmduprófalok!

She would take the pain, she would take the pain, she would take the pain away..

jájájájá.. Ég tek sársaukann í burtu.. svo mikið er víst..

Heyrðu.. góðan daginn..
Samræmdu erubúin..!
Nokkur Happy Smile fyrir því.. :D:D:D:D:haha::haha:
Jamm..
Ég veit ei hvað skal blogga um..

 

Hvað segiði um Ballið í Árgarði..?
Það var auðvitað bara gargandi snilld..
Maður mætti þarna á spariskónum...
Sem á einhvern hátt gera mig hærri en ég er..
Allavega..
Geiri stóð að sjálfsögðu fyrir sínu..
Það er ekki spurningin..
Ég dansaði við alla þessa yndislegu karlmenn þarna..
jájááá..
Byrjaði á að dansa við Smára..
Svo urðu fyrir valinu, Hannes&ÓskarPáll&Harðarson&fleiri..
Síðan kom pásan og þá var maður orðin þreyttur..
Fór þarna og fékk mér sæti..
Og sýndi á mér kæti..
Og fékk síðan ÓskarBróó til að kaupa Kók handa mér..
Þá kom smá líf í kroppinn og ég dansaði eftir pásuna..
Een það var svo ótrúlega leiðinlegt að fara heim..
Það síðasta sem ég vildi gera þarna..
Enda var orðið svo bjart þegar heim var komið..
Við skiluðum SindraV heim og fórum aðeins á Trampó..
Það var stuð..
En svo fór ég bara í sturtu þegar við komum heim..
Eftir að ég var búin að borða bananann..
Þurfti víst að skola eitthvað af þessum bjór af mér..
Rosalegt ball allavega.. ;)

 

Pff.. síðan kom bara prófalestur..
En hann varð nú ekkert mikill..
Eeeða jáááá.. ekki finnst mér það..
Allavega.. Skólinn á góðri leið með að verða búinn..

 

Pff.. Frúin á bænum hefur tekið upp á því að fara þrífa..
Sem þýðir að ég þarf að þrífa mitt "Hreina" herbergi..
Pff.. Bölvað bras..

 

Segjum þetta gott í bili..
Þetta er slappt blogg..
En nóg í bili..
Ég tek upp pennann aftur þegar eitthvað bitastætt gerist..
Sæl að sinni..!

Sigrún | Litli Kúabóndinn

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8